Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
11.10.2008 | 08:26
Heigulsháttur Geirs H. Haarde
Forsætisráðherra Breta, Gordon Brown, ákvað sökum óvinsælda sinna, að gera smáþjóðina Ísland að höfuðandstæðingi sínum... og hann hefur í vikunni heldur betur HRAUNAÐ yfir alla Íslendinga- og gert það sem hefði átt að vera tilktölulega einfalt samningsatriði.... að ósvikinni milliríkjadeilu.
Eins hrikalega og ég þoli ekki Dabba kónng - þá vantaði hann illilega í framsætið til að troða digurbarkalegum yfirlýsingum Browns þveröfugum í kokið á honuim.
Voðalega eiga Íslendingar bágt að eiga forsætisráðherra sem þorir hvorki að æmpta eða skræmpta.
Gordon Brown gerði íslensku þjóðina að athlægi í vikunni... en hver eru viðbrögð Haarde???
"Ég ætla ekkert að eltast í ólar við yfirlýsingar forsætisráðherra Breta.... og "bla bla bla"
Ef Ísland þurfti einhvern tíma á ráðherra sem þorði að tjá sig... þá er undarlega hljótt í Össuri síðasta sólarhringinn
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)